Í kvöld lýkur 18. umferð í Iceland Express deild karla með þremur leikjum go beinast flestra augu til Grindavíkur þar sem toppliðið tekur á móti Íslandsmeisturum KR í Röstinni. Með sigri í kvöld gulltryggja Grindvíkingar sér deildarmeistaratitilinn og þ.a.l. heimaleikjaréttinn út alla úrslitakeppnina.
Leikir kvöldsins í IEX-deild karla, 19:15:
Grindavík-KR
Fjölnir-Þór Þorlákshöfn
ÍR-Valur
Grindavík-KR
Sigur hjá Grindavík tryggir þeim deildarmeistaratitilinn en fyrir leikinn í kvöld er KR í 4. sæti deildarinnar með 22 stig. Fyrri leikur liðanna fór 59-85 fyrir Grindavík þegar liðin mættust í DHL-Höllinni síðla nóvembermánaðar á síðasta ári, KR kvittaði fyrir þann leik með því að slá Grindavík út úr bikarkeppninni svo þriðji slagur þessara liða ætti að verða forvitnilegur í kvöld.
Fjölnir-Þór Þorlákshöfn
Þórsarar hafa unnið þrjá síðustu deildarleiki sína á meðan Fjölnismenn hafa tapað síðustu tveimur deildarleikjum. Þór í 5. sæti með 22 stig og þurfa sigur enda í magnaðri baráttu liðanna í 2.-7. sæti deildarinnar en Fjölnismenn í 9. sæti með 14 stig. Þetta 9. sæti hefur verið Fjölnismönnum kunnuglegt síðustu tvö tímabil en þar hafa þeir lent og rétt misst af úrslitakeppninni síðan þeir komu upp úr 1. deild.
ÍR-Valur
ÍR að frátöldum andstæðingum þeirra í kvöld er í mestu niðursveiflu deildarinnar, hafa tapað síðustu fimm deildarleikjum í röð og verma nú 10. sæti með 12 stig en Valsmenn eru fallnir á botninum án stiga.
Í kvöld eru einnig fjórir leikir í 1. deild karla og þar er heldur betur farið að hitna í kolunum. KFÍ hefur þegar tryggt sér sæti í úrvalsdeild karla á næstu leiktíð en baráttan um sæti í úrslitakeppni 1. deildar er hörð en liðin sem hafna í 2.-4. sæti í deildarkeppninni leika til úrslita um sæti í úrvalsdeild.
Allir leikir kvöldsins í 1. deild karla hefjast kl. 19:15:
ÍA-Breiðablik
FSu-Ármann
Hamar-Þór Akureyri
Skallagrímur-ÍG
ÍA-Breiðablik
Ásamt Þór Akureyri eru þessi þrjú lið að berjast um síðasta sætið inn í úrslitakeppni 1. deildar. Fyrri viðureign Blika og ÍA fór 88-65 fyrir Breiðablik svo ef ÍA ætlar sér í úrslitakeppnina verða þeir að vinna Blikana í kvöld með 24 stiga mun! ÍA hefur betur innbyrðis gegn Þór Akureyri og liðin eru bæði með 14 stig en Þórsarar eiga stóran leik fyrir höndum í kvöld gegn Hamri.
FSu-Ármann
Ármann hefur betur innbyrðis gegn ÍG í deildinni en eru á botninum, fjórum stigum á eftir ÍG. Til að bjarga sér frá falli verða Ármenningar að vinna síðustu tvo leiki sína og stóla á að ÍG tapi tveimur síðustu leikjum sínum. Tap í kvöld þýðir að Ármann fellur í 2. deild karla.
Hamar-Þór Akureyri
Hvergerðingar eru öruggir inn í úrslitakeppni deildarinnar, Breiðablik getur enn jafnað þá að stigum og sett Hamar í fjórða og síðasta sæti úrslitakeppninnar en það gerist bara ef Hamar tapar næstu tveimur leikjum og Blikar vinni báða sína. Ekkert annað en sigur í síðustu tveimur leikjunum sínum dugir fyrir Þórsara og þá þurfa þeir einnig að stóla á hagstæð úrslit í öðrum leikjum, t.d. að Blikar og Skagamenn tapi stigum en hluti þeirrar vonar mun rætast hjá norðanmönnum í kvöld þar sem Blikar heimsækja ÍA á Jaðarsbakka í kvöld.
Skallagrímur-ÍG
Bornesingar eru öruggir inn í úrslitakeppni 1. deildar, hvar þeir enda og hvort þeir nái heimaleikjarétt á eftir að koma í ljós. Nýliðar ÍG eiga ekki möguleika á sæti í úrslitakeppninni með 8 stig í næstneðsta sæti deildarinnar en sigur myndi róa þessa ágætu Grindvíkinga því þessi tvö stig myndu gulltryggja fall Ármanns í 2. deild.
Upptalningunni er ekki lokið því í 1. deild kvenna eigast við Stjarnan og Skallagrímur í kvöld kl. 19:15 í Ásgarði. Stjarnan er í 3. sæti deildarinnar með 16 stig en Skallagrímur í 4. sæti með 8 stig. Í 2. deild karla mætast svo Reynir Sandgerði og Augnablik kl. 19:00 í Sandgerði.



