HomeFréttirLeikir kvöldsins: Fimmtánda umferð hefst í úrvalsdeild karla

Leikir kvöldsins: Fimmtánda umferð hefst í úrvalsdeild karla

Í kvöld hefst fimmtánda umferðin í Iceland Express deild karla með fjórum leikjum og allir hefjast þeir kl. 19:15. Topplið Grindavíkur fer norður í Skagafjörð og mætir þar Tindastólsmönnum.
 
Leikir kvöldsins:
 
Valur-Fjölnir
Tindastóll-Grindavík
Snæfell-ÍR
Þór Þorlákshöfn-Njarðvík
 
Valur-Fjölnir
Valsmenn sem fyrr á botni deildarinnar án stiga og 16 stig í boði svo það er ekki enn hægt að segja að liðið sé fallið en ekkert annað en sigur í öllum mótsleikjum það sem eftir er dugir þeim til að bjarga sér frá 1. deild. Fjölnismenn eru í 8. sæti með 12 stig eins og ÍR, Tindastóll og Njarðvík en öll þessi lið verða að hafa varann á því þau geta ekki burstað af sér þá staðreynd að fall sé mögulegt.
 
Tindastóll-Grindavík
Stólarnir ættu að vera hátt uppi um þessar mundir eftir að hafa tryggt sig inn í bikarúrslit en liðið er í 9. sæti deildarinnar með 12 stig en Grindavík á toppnum með 26 stig. Grindavík slapp með skrekkinn gegn ÍR í síðustu umferð þegar þeir unnu með flautukörfu en Tindastólsmönnum var pakkað saman í Grafarvogi.
 
Snæfell-ÍR
Snæfell hefur smokrað sér upp í 5. sæti deildarinnar með 16 stig og hafa unnið fimm deildarleiki í röð. ÍR hefur einnig tapað síðustu tveimur deildarleikjum sínum og berjast nú hart um sæti í úrslitakeppninni.
 
Þór Þorlákshöfn-Njarðvík
Njarðvíkingar eiga harma að hefna gegn nýliðunum sem unnu stórt þegar liðin mættust í Ljónagryfjunni. Þór hefur 16 stig í 6. sæti deildarinnar en Njarðvíkingar eru með 12 stig í 10. sæti deildarinnar.
 
Allir á völlinn!
 
Staðan í deildinni
Nr. Lið U/T Stig
1. Grindavík 13/1 26
2. Stjarnan 10/4 20
3. Keflavík 10/4 20
4. KR 9/5 18
5. Snæfell 8/6 16
6. Þór Þorlákshöfn 8/6 16
7. ÍR 6/8 12
8. Fjölnir 6/8 12
9. Tindastóll 6/8 12
10. Njarðvík 6/8 12
11. Haukar 2/12 4
12. Valur 0/14 0
 
Fréttir
- Auglýsing -