spot_img
HomeFréttirLeikir dagsins: Veisla í kvöld

Leikir dagsins: Veisla í kvöld

 
Heil umferð fer fram í Iceland Express deild karla í kvöld og því sannkölluð veisla á boðstólunum. Allir sex leikirnir hefjast kl. 19:15 en þetta er sextánda umferð deildarinnar og því eru fyrir leiki kvöldsins alls 14 stig í pottinum svo enn geta töluverðar breytingar orðið á stöðutöflunni.
Leikir kvöldsins:
 
KR-Keflavík
Hamar-Njarðvík
Stjarnan-KFÍ
Snæfell-Tindastóll
ÍR-Grindavík
Haukar-Fjölnir
 
KR-Keflavík
Gríðarlegur slagur hér í vændum enda tvö heitustu lið deildarinnar hér á ferðinni. Bæði lið með sterka og örugga sigra í síðustu umferð og óhætt að fullyrða að veisla sé framundan enda bakvarðasveitir liðanna þétt skipaðar. Verður fróðlegt að sjá Pavel, Marcus og Brynjar taka á móti Herði, Thomas og Gunnari. Liðin eru jöfn í 3.-4. sæti deildarinnar með 22 stig og hafa að undanförnu sótt hart að Grindavík og Snæfell á toppnum. Þá er KR enn ósigrað á heimavelli og er eitt í þeim klassa ásamt meisturum Snæfells.
 
Hamar-Njarðvík
Hvergerðingar fengu skell í Keflavík í síðustu umferð og vígðu þá nýjan leikmann, Devin Sweetney, sem fyllti skarð Andre Dabney sem látinn var fara frá félaginu. Njarðvíkingar unnu sterkan sigur á Stjörnunni í Ljónagryfjunni í síðustu umferð og frumsýndu þá tvo nýja leikmenn sem höfðu sig mikið í frammi strax í fyrsta leik. Mikill barátta framundan hjá báðum liðum sem stara nú í andlitið á 1. deild.
 
Stjarnan-KFÍ
Ísfirðingar lögðu meistara Snæfells í síðustu umferð og mæta því fullir sjálfstrausts í Garðabæinn. Allt þarf að ganga upp hjá nýliðum KFÍ til að forðast fall í 1. deild og Stjarnan má ekki við því að misstíga sig mikið meir þessa leiktíðina enda í harðri baráttu um gott sæti í úrslitakeppninni.
 
Snæfell-Tindastóll
Spurning hvort miðherjinn Ryan Amoroso verði með Hólmurum í kvöld en meistararnir eru í vandræðum undir körfunni án kappans og ekki ljúft að vera í þeim sporum þegar Helgi Rafn Viggósson er á leiðinni í heimsókn. Stólarnir hafa verið að ná í mikilvæg stig í síðustu umferðum og hafa unnið sex deildarleiki í röð á heimavelli en eiga enn eftir að sýna stöðugleika á útivelli.
 
ÍR-Grindavík
ÍR er í 10 stiga hópnum í deildinni ásamt Njarðvík, Hamri og Fjölni svo Gunnar Sverrisson og liðsmenn verða með allt í botni þegar Helgi Jónas mætir með Grindvíkinga í Hellinn. Þar mun Bandaríkjamaðurinn Kevin Sims leika sinn fyrsta leik með Grindavík en gulir hafa verið án Bandaríkjamanns í síðustu umferðum og fengu t.d. skell gegn Haukum á heimavelli í síðustu umferð.
 
Haukar-Fjölnir
Fjölnismenn hafa nú fengið miðherja á reynslu og vonast til að mæta með hann á Ásvelli í kvöld. Grafarvogspiltar fengu skell í síðustu umferð gegn KR þegar Vesturbæingar settu 64 stig á þá á 20 mínútum. Manni segir svo hugur að varnarleikurinn hafi verið tekinn í gegn eftir þá útreið og gulir mæti grimmir á Ásvelli enda ekki vanþörf á þar sem rauðir virðast vera í fantagír um þessar mundir með Robinson grimman í fráköstunum og Semaj… og Semaj, það þarf ekkert að fjölyrða um þann magnaða leikmann.
 
Sem sagt, frábært körfuboltakvöld framundan og rík ástæða til þess að fjölmenna á völlinn!
 
Fréttir
- Auglýsing -