Í kvöld heldur Dominosdeild kvenna áfram og þrír leikir á dagskrá. Ósigrað topplið Hauka fær nýliða Stjörnunar í heimsókn . Valskonur renna Reykjanesbrautina til enda og heimsækja Keflavík í TM-Höllina og loks halda Hamarsstúlkur vestur til Stykkishólms og etja þar kappi við meistara Snæfell. Allir leikir hefjast kl 19:15 að venju.
Mynd: Systurnar spila í kvöld. Helena heima fyrir en Guðbjörg heldur í Bítlabæinn



