Nóg er um að vera í boltanum hér heima í dag en þrettánda umferðin í Iceland Express deild karla rúllar af stað með þremur leikjum sem allir hefjast kl. 19:15. Þá er einnig nóg um að vera í neðri deildum og yngri flokkum.
Leikir kvöldsins í Iceland Express deild karla:
Njarðvík-ÍR
Fjölnir-Stjarnan
Tindastóll-Haukar
Við mælum með að fólk kíki á heimasíður Fjölnis og Tindastóls á leiktíma enda eru bæði félögin að sýna heimaleiki sína í beinni á netinu.
Einn leikur er í 1. deild karla í dag þegar nýliðar Leiknis taka á móti Þór Akureyri í Austurbergi kl. 16:00. Þá má sjá yfirlit yfir alla leiki dagsins með því að smella hér.




