HomeFréttirLeikir dagsins: Þórsarar mæta á Skagann

Leikir dagsins: Þórsarar mæta á Skagann

Einn leikur fer fram í 1. deild karla í kvöld þegar nýliðar ÍA taka á móti Þór Akureyri við Jaðarsbakka á Akranesi. Viðureign liðanna hefst 19:15 en tveimur stigum munar á liðunum, ÍA með 12 stig í 6. sæti deildarinnar og Þór með 10 stig í 7. sæti.
 
Þá er einn leikur í 1. deild kvenna þegar Breiðablik tekur á móti Skallagrím kl. 19:15 í Smáranum í Kópavogi.
 
Fréttir
- Auglýsing -