spot_img
HomeFréttirLeikir dagsins: Stórleikur í DHL-Höllinni

Leikir dagsins: Stórleikur í DHL-Höllinni

 
Sannkallaður stórslagur verður í DHL-Höllinni í Vesturbænum í kvöld þegar Íslandsmeistarar KR fá topplið Hamars í heimsókn í Iceland Express deild kvenna. Leikurinn hefst kl. 19:15 og munu meistarar KR að öllum líkindum tefla fram nýjum bandarískum leikmanni.
Hamar er taplaust á toppi deildarinnar á meðan KR er í 3. sæti deildarinnar en röndóttar geta með sigri í kvöld orðið fyrsta liðið til að leggja Hamar og minnkað bilið milli liðanna niður í 6 stig og þannig nánast tryggt sér sætið í A-riðli að því gefnu að Njarðvík tapi a.m.k. einum leik í næstu þremur umferðum.
 
 
Aðrir leikir dagsins eru 3 leikir í drengjaflokki:
 
19:15 ÍR-Haukar
20:00 Stjarnan-KR
20:00 Grindavík-Keflavík
20:30 Valur-Breiðablik
 
Fréttir
- Auglýsing -