Í kvöld hefjast þrír leikir á slaginu 19:15 í úrvalsdeild karla og klárast þar með 1. umferðin. Óhætt er að segja að stórleikur umferðarinnar sé leikur Stjörnumanna gegn KR í Ásgarði. Í Njarðvík taka heimamenn á móti nýliðum Hetti og í Þorlákshöfn taka heimamenn í Þór á móti Keflavík.
Í 1. deild kvenna leika Blikar gegn Skallagrím og svo í 1. deild karla eru eftirfarandi viðureignir.
Reynir – ÍA
KFÍ – Þór Ak.
Fjölnir – Hamar (19:30)
Valur – Skallagrímur (19:30)
Ármann – Breiðablik (20:00)



