Í dag fara fram tveir leikir af fjórum í síðustu umferðinni í Iceland Express deild kvenna. Sama hver úrslit umferðarinnar verða þá er þegar ljóst hvaða lið munu skipa A og B riðlana. Báðir leikir dagsins hefjast kl. 16:00.
Grindavík-Snæfell
Hamar-Keflavík
Viðureign Hauka og Fjölnis fer svo fram á morgun, sunnudag, og síðasti leikur umferðarinnar fer fram á mánudag þegar KR tekur á móti Njarðvík í DHL-Höllinni.
Þá er fjöldi fjölliðamóta í gangi um helgina í t.d. Njarðvík, Vodafonehöllinni, Rimaskóla og Stykkishólmi svo eitthvað sé nefnt. Einnig eru leikir í neðri deildum meistaraflokkanna en heildaryfirlit yfir leiki dagsins má sjá hér.




