spot_img
HomeFréttirLeikir dagsins: Síðast fögnuðu þeir – hvað gerist nú?

Leikir dagsins: Síðast fögnuðu þeir – hvað gerist nú?

 
Sannkallaður stórslagur verður í Toyota-höllinni í Reykjanesbæ í kvöld þegar Íslands- og bikarmeistarar Snæfells mæta í heimsókn á heimavöll þeirra Keflvíkinga en þetta verður í fyrsta sinn sem Hólmarar mæta til Keflavíkur í deildinni eftir að þeir fögnuðu þar Íslandsmeistaratitlinum. Þrír leikir eru annars á dagskránni í Iceland Express deild karla í kvöld og marka þeir lok þrettándu umferðar.
Leikir kvöldsins í IEX karla – hefjast allir kl. 19:15:
 
KFÍ-Grindavík (ath KFÍ tv)
KR-Hamar (ath KR tv)
Keflavík-Snæfell
 
Hólmarar hafa aðeins tapað einum deildarleik þetta tímabilið og það gegn Njarðvíkingum sem nú eru í fallsæti ásamt KFÍ. Keflvíkingar eru um þessar mundir í 3. sæti deildarinnar með 16 stig og geta með sigri minnkað forskot Hólmara á sig niður í 4 stig. Þá verður Lazar Trifunovic í búning í kvöld með Keflavík en hann var fjarverandi í síðustu umferð gegn ÍR sökum meiðsla en það kom ekki að sök þar sem Keflvíkingar höfðu mikla yfirburði í Hellinum í Seljaskóla.
 
Hið sama gildir fyrir KR sem vísast vona að Keflvíkingum takist ætlunarverk sitt í kvöld því KR hefur einnig 16 stig og deilir 3.-4. sætinu með Keflavík. Hamar mætir í DHL-Höllina í kvöld en Ágúst Björgvinsson og hans menn hafa tapað síðustu fjórum deildarleikjum í röð á meðan KR hefur unnið sex heimaleiki í röð, Hvergerðinga bíður því ærinn starfi.
 
Á Ísafirði mæta Grindvíkingar til leiks án leikstjórnanda en þeim hefur ekki tekist að tryggja sér nýjan Bandaríkjamann síðan Brock Gillespie hafnaði tilboði þeirra og kom ekki til landsins. Ísfiðringar þurfa nauðsynlega á stigunum tveimur að halda enda á botni deildarinnar og hafa tapað níu deildarleikjum í röð.
 
Það verður því nóg um að vera í boltanum í kvöld og þeir sem ekki komast á leikina ættu að kíkja á félagssíður KR og KFÍ sem jafnan standa að glimrandi góðum netútsendingum frá liðum sínum.
 
 
Fréttir
- Auglýsing -