Þrír leikir fara fram í Iceland Express deild karla í kvöld en þeir marka lok sautjándu umferðar. Í gær fóru fram þrír slagir þar sem m.a. þurfti að tvíframlengja í Schenkerhöllinni þegar Grindvíkingar styrktu stöðu sína á toppnum. Í kvöld verður viðureign KR og Fjölnis í beinni netútsendingu á KR TV.
Leikir kvöldsins í IEX-deild karla, 19:15:
Þór Þorlákshöfn-Keflavík
KR-Fjölnir
Valur-Tindastóll
Staðan í Iceland Express deild karla
| 1. | Grindavík | 16/1 | 32 |
| 2. | Stjarnan | 11/6 | 22 |
| 3. | Keflavík | 11/5 | 22 |
| 4. | KR | 10/6 | 20 |
| 5. | Þór Þorlákshöfn | 10/6 | 20 |
| 6. | Snæfell | 9/8 | 18 |
| 7. | Njarðvík | 8/9 | 16 |
| 8. | Fjölnir | 7/9 | 14 |
| 9. | Tindastóll | 7/9 | 14 |
| 10. | ÍR | 6/11 | 12 |
| 11. | Haukar | 4/13 | 8 |
| 12. | Valur | 0/16 | 0 |
Þá eru fjórir leikir á dagskrá í 1. deild karla í kvöld en eins og áður hefur komið fram hefur KFÍ unnið sigur í 1. deild og leikur því í úrvalsdeild karla á næsta tímabili. Allir leikirnir í 1. deild karla í kvöld hefjast kl. 19:15.
Ármann-Hamar
Þór Akureyri-Skallagrímur
ÍG-Höttur
ÍA-FSu
Stefnt er að því að sýna beint frá slag Þórs og Skallagríms, fylgist með á www.thorsport.is í dag
Einn leikur er í 1. deild kvenna en þá eigast við KFÍ og Stjarnan kl. 18.30 á Ísafirði.



