Í kvöld hefst 19. umferðin í Iceland Express deild karla með þremur leikjum sem allir hefjast kl. 19:15. Erikifjendurnir Njarðvík og Keflavík mætast í Ljónagryfjunni í rimmunni um Reykjanesbæ, Haukar fá botnlið Vals í heimsókn og KR tekur á móti Tindastól.
Leikir kvöldsins:
KR-Tindastóll
KR í 5. sæti deildarinnar með 22 stig en Tindastóll í 7. sæti og geta með sigri komist upp fyrir Snæfell í 6. sæti deildarinnar en Hólmarar leika annað kvöld.
Haukar-Valur
Valsmenn eru fallnir í 1. deild en Haukar eiga enn möguleika á því að bjarga sér frá falli með 8 stig í 11. sæti deildarinnar, 6 stigum á eftir Fjölni og ÍR.
Njarðvík-Keflavík
Keflvíkingar eru í 4. sæti deildarinnar með 24 stig en Njarðvík hefur 16 stig í 8. sæti deildarinnar. Njarðvíkingar bjóða stuðningsmönnum sínum í Grænu ljónunum upp á pizzahlaðborð fyrir leik og einnig munu þjálfarar liðsins fara yfir leikinn og svara spurningum þeirra.
Staðan í deildinni
| Nr. | Lið | U/T | Stig |
|---|---|---|---|
| 1. | Grindavík | 17/1 | 34 |
| 2. | Stjarnan | 12/6 | 24 |
| 3. | Þór Þorlákshöfn | 12/6 | 24 |
| 4. | Keflavík | 12/6 | 24 |
| 5. | KR | 11/7 | 22 |
| 6. | Snæfell | 9/9 | 18 |
| 7. | Tindastóll | 9/9 | 18 |
| 8. | Njarðvík | 8/10 | 16 |
| 9. | ÍR | 7/11 | 14 |
| 10. | Fjölnir | 7/11 | 14 |
| 11. | Haukar | 4/14 | 8 |
| 12. | Valur | 0/18 | 0 |



