spot_img
HomeFréttirLeikir dagsins: Nágrannasveitarfélögin á fullu í kvöld

Leikir dagsins: Nágrannasveitarfélögin á fullu í kvöld

Í kvöld heldur úrslitakeppnin í Domino´s-deild karla áfram göngu sinni þegar viðureignirnar Haukar-Þór Þorlákshöfn og Stjarnan-Njarðvík rúlla af stað í nágrannasveitarfélögunum Garðabæ og Hafnarfirði. Báðir leikir liðanna hefjast kl. 19.15. Úrslitakeppnin hófst í gærkvöldi þar sem KR og Tindastóll tóku bæði 1-0 forystu í sínum rimmum.

Í kvöld er einnig lokaumferðin í 1. deild karla og þá fáum við endanlega úr því skorið hvernig úrslitakeppninni þeim megin verður háttað. Fyrir kvöldið er ljóst að Þór Akureyri er deildarmeistari og fer beint upp í Domino´s-deild karla en Þórsarar fá deildarmeistaratitil sinn afhentan í kvöld þegar liðið tekur á móti ÍA. 

Allir leikir dagsins
 

18-03-2016 18:00 1. deild kvenna Fjölnir   Skallagrímur Dalhús
18-03-2016 18:30 Drengjaflokkur Fjölnir b dr. fl.   Þór Ak. dr. fl. Rimaskóli
18-03-2016 19:15 1. deild karla Hamar   Reynir Sandgerði Hveragerði
18-03-2016 19:15 Úrvalsdeild karla Stjarnan   Njarðvík Ásgarður
18-03-2016 19:15 Úrvalsdeild karla Haukar   Þór Þ. Schenkerhöllin
18-03-2016 19:30 1. deild karla Valur   Breiðablik Valshöllin
18-03-2016 20:00 1. deild karla Ármann   KFÍ Kennaraháskólinn
18-03-2016 20:00 1. deild karla Þór Ak.   ÍA Höllin Ak
18-03-2016 20:30 1. deild karla Fjölnir   Skallagrímur Dalhús
18-03-2016 21:15 Stúlknaflokkur Haukar st. fl.
Fréttir
- Auglýsing -