HomeFréttirLeikir dagsins: Lokapúslið í bikarnum lagt í kvöld

Leikir dagsins: Lokapúslið í bikarnum lagt í kvöld

 
Í kvöld ræðst það hvort Haukar eða Grindavík muni mæta KR í Laugardalshöllinni í úrslitaleiknum um Poweradebikarinn 2011. KR lagði Tindastól í gær í undanúrslitum í karlaflokki og þá komust KR konur einnig í Höllina og munu leika til úrslita gegn Keflvíkingum.
Haukar taka á móti Grindavík í kvöld og fer leikurinn fram að Ásvöllum kl. 19:15. Eins og fyrr segir mætir annað hvort liðið KR í úrslitum. Grindvíkingar eru liða ferskastir af þeim sem geta skipað úrslitaleikinn í ár, urðu síðast bikarmeistarar 2006. Haukar urðu síðast bikarmeistarar árið 1996 og KR varð síðast bikarmeistari fyrir 20 árum síðan eða árið 1991.
 
Þá er athyglisverður leikur í 1. deild karla í dag þegar Leiknir tekur á móti Laugdælum í botnslag 1. deildar. Leikurinn hefst kl. 16:00 í Austurbergi en bæði lið hafa 6 stig í 8.-9. sæti deildarinnar svo þau tvö stig sem í boði eru í dag verða afar vel þegin.
 
Annars er urmull leikja í dag í neðri deildum og yngri flokkum og má sjá heildaryfirlit yfir leikina hér.
 
Mynd/ [email protected]Grindavík og Haukar mættust í deildinni á dögunum þar sem Haukar fóru með stórsigur af Hólmi í Röstinni.
Fréttir
- Auglýsing -