Þrír leiki fara fram í Lengjubikar karla í kvöld og einn leikur í Iceland Express deild kvenna. KR tekur á móti spútnik liði Iceland Expressdeildarinnar, Þór frá Þorlákshöfn, sem mun vafalaust vilja hefna fyrir ófarirnar í fyrsta leik deildarinnar. Haukar taka á móti KFÍ og Snæfell fær Tindastól í heimsókn. Í Iceland Express deild kvenna fær Snæfell Hamar í heimsókn.
Leikir dagsins:
Lengjubikar karla
KR-Þór Þorlákshöfn klukkan 19:15 í DHL höllinni
Haukar- KFÍ klukkan 19:15 á Ásvöllum
Snæfell- Tindastóll klukkan 19:15 í Stykkishólmi
Iceland Express deild kvenna
Snæfell- Hamar klukkan 17:00 í Stykkishólmi
1. deild karla
FSU- Höttur klukkan 20:00 í Iðu
1. deild kvenna
KFí- Grindavík klukkan 13:00 á Ísafirði