HomeFréttirLeikir dagsins: Leiki að finna í nánast hverju húsi

Leikir dagsins: Leiki að finna í nánast hverju húsi

Tugir leikja eru á dagskránni í dag og Iceland Express deild kvenna verður í brennidepli þegar 22. umferð deildarinnar hefst með þremur leikjum. Það eru Haukar og Njarðvík sem ríða á vaðið kl. 13.30 þegar liðin mætast í Schenkerhöllinni í Hafnarfirði en það verður skammt stórra högga á milli hjá þessum félögum því þau mætast aftur á mánudag í undanúrslitum Powerade-bikarsins.
Kl. 16:30 í dag bjóða Reykjavíkurliðin KR og Valur á sinn heimavöll þegar Snæfell mætir Val og KR fær Hamar í heimsókn í DHL-Höllina. Umferðinni lýkur svo á morgun með viðureign Fjölnis og Keflavíkur í Dalhúsum í Grafarvogi.
 
Í dag eru 14 stig eftir í pottinum í úrvalsdeild kvenna og því getur enn margt breyst en fjögur efstu lið deildarinnar tryggja sér sæti í úrslitum. Væri blásið til úrslitakeppninnar í dag yrði hún skipuð Keflavík, Njarðvík, Haukum og KR.
 
 
Staðan í Iceland Express deild kvenna
Nr. Lið U/T Stig
1. Keflavík 17/4 34
2. Njarðvík 15/6 30
3. Haukar 12/9 24
4. KR 12/9 24
5. Snæfell 10/11 20
6. Valur 8/13 16
7. Hamar 5/16 10
8. Fjölnir 5/16 10
  
Fréttir
- Auglýsing -