Borgin iðar af úrslitakeppnislífi í kvöld því sería KR og Njarðvíkur hefur göngu sína í undanúrslitum Domino´s-deildar karla og þá fara fram tveir hörkuleikir í 1. deild karla. Viðureign KR og Njarðvíkur hefst kl. 19:15 og verður í beinni útsendingu hjá Stöð 2 Sport.
Hjá Fjölni og ÍA er staðan 1-1 og mætast liðin kl. 19:15 í Dalhúsum en að Hlíðarenda hefst viðureign Vals og Skallagríms kl. 19:30 þar sem Valur leiðir einvígið 2-0.
Allir leikir dagsins
| 04-04-2016 19:15 | 1. deild karla | Fjölnir | ÍA | Dalhús | |
| 04-04-2016 19:15 | Úrvalsdeild karla | KR | Njarðvík | DHL-höllin | |
| 04-04-2016 19:30 | 1. deild karla | Valur | Skallagrímur | Valshöllin | |
| 04-04-2016 20:00 | Drengjaflokkur | ÍR dr. fl. | Keflavík dr. fl. | Hertz Hellirinn – Seljaskóli |



