HomeFréttirLeikir dagsins: Keflavík og Haukar ríða á vaðið - úrslit í 1....

Leikir dagsins: Keflavík og Haukar ríða á vaðið – úrslit í 1. deild kvenna

Í dag hefst seinni undanúrslitaviðureignin í úrslitakeppni Iceland Express deildar kvenna þegar deildarmeistarar Keflavíkur taka á móti Lengjubikarmeisturum Hauka í Toyota-höllinni í Reykjanesbæ. Njarðvík og Snæfell sigldu úr höfn í gær þar sem Njarðvíkingar tóku 1-0 forystu.
Viðureign Keflavíkur og Hauka hefst kl. 16:30 en eins og fyrr segir þarf að vinna þrjá leiki til að tryggja sér farseðilinn inn í úrslitaseríuna.
 
Í dag hefjast einnig úrslitin í 1. deild kvenna þar sem eigast við Grindavík og KFÍ og hefast leikar kl. 18:15 í Röstinni í dag, Grindavík er með heimaleikjaréttinn og varð á dögunum deildarmeistari 1. deildar. Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki tryggir sér sæti í efstu deild kvenna á næstu leiktíð.
 
Þá eru fjölmargir leikir í yngri flokkum í dag og er hægt að nálgast alla leiki dagsins hér
  
Fréttir
- Auglýsing -