Í kvöld lýkur 27. umferð í Iceland Express deild kvenna með þremur leikjum. Hér dúkkar upp enn einn sénsinn fyrir Keflavík til að tryggja sér deildarmeistaratitilinn en það gerist ef Njarðvík tapar gegn Fjölni í Grafarvogi, að sama skapi þýðir Fjölnissigur að Hamar fellur í 1. deild kvenna og skiptir þá engu máli hvort Hamar vinni Val eða tapi. Þá er stórslagur kvöldsins viðureign Hauka og KR en það lið sem vinnur tryggir sér síðasta sætið í úrslitakeppninni.
Leikir dagsins í IEX-deild kvenna, 19:15:
Valur – Hamar
Haukar – KR
Fjölnir – Njarðvík
Valur-Hamar
Valskonur komast ekki í úrslitakeppnina en staða þeirra í deildinni er örugg. Hið sama verður ekki sagt um Hamar sem verður að vinna tvo síðustu leiki sína og treysta því að Fjölnir tapi síðustu tveimur leikjum sínum til þess að Hamar geti forðað sér frá falli í 1. deild kvenna.
Haukar-KR
Haukar leiða 2-1 í rimmum liðanna og innbyrðisstigamunur er 0 og því mun sigurvegarinn í kvöld ná síðasta sætinu í úrslitakeppninni, sama hvernig leikar fara í lokaumferð deildarinnar. Það má því gera ráð fyrir þöndum taugum í Hafnarfirði í kvöld þar sem Haukar og KR leggja tímabilið að veði.
Fjölnir-Njarðvík
Njarðvík verður að vinna í kvöld til að eiga möguleika á deildarmeistaratitlinum en leikstjórnandi grænna, Shanae Baker-Brice, verður ekki með í kvöld sökum meiðsla. Ef Fjölnir vinnur gulltryggja þær sæti sitt í deildinni og senda Hamar niður í 1. deild.
Mynd/ [email protected] – Frá viðureign KR og Hauka fyrr á tímabilinu í DHL-höllinni.



