spot_img
HomeFréttirLeikir dagsins: Höllin að veði í kvöld!

Leikir dagsins: Höllin að veði í kvöld!

Í kvöld fara undanúrslitin fram í Poweradebikarkeppni karla. Í gær voru það Grindavík og Snæfell sem tryggðu sig í úrslit í kvennaflokki og í kvöld er komið að körlunum. Báðir undanúrslitaleikirnir hefjast kl. 19:15 þar sem Þór Þorlákshöfn tekur á móti Keflavík og Grindavík fær KR í heimsókn.

Leikir kvöldsins í undanúrslitum Poweradebikarsins

19:15 Þór Þorlákshöfn – Keflavík
19:15 Grindavík – KR

Þrjú af fjórum liðum kvöldsins hafa áður orðið bikarmeistarar, KR oftast allra liða eða 10 sinnum, næstir eru Keflvíkingar með sex bikarsigra og Grindvíkingar hafa fimm sinnum orðið bikarmeistarar. Þór Þorlákshöfn hefur aldrei leikið til úrslita í keppninni svo takist þeim að vinna sigur á Keflavík í kvöld opna þeir nýjan kafla í sögubókum Þorlákshafnar. 

Allir leikir dagsins
 

25-01-2016 18:00 Drengjaflokkur Snæfell dr. fl.   Skallagrímur dr. fl. Stykkishólmur
25-01-2016 18:30 Stúlknaflokkur Keflavík st. fl.   Ármann/Valur st. fl. TM höllin
25-01-2016 19:15 Bikarkeppni karla Þór Þ.   Keflavík Icelandic Glacial höllin
25-01-2016 19:15 Bikarkeppni karla Grindavík   KR Mustad höllin
25-01-2016 20:00 Stúlknaflokkur Njarðvík st. fl.   Haukar st. fl. Njarðvík
25-01-2016 20:00 Drengjaflokkur ÍR dr. fl.   Breiðablik dr. fl. Hertz Hellirinn – Seljaskóli

Mynd/ Vance og félagar í Þór fá Keflavík í heimsókn í undanúrslitum Poweradebikarsins í kvöld. 

Fréttir
- Auglýsing -