Tveir leikir fara fram í 8-liða úrslitum Domino´s-deildar karla í kvöld og hefjast þeir báðir kl. 19:15. Stjarnan tekur á móti Njarðvík í Ásgarði og Haukar fá Þór Þorlákshöfn í heimsókn í DB Schenkerhöllina. Viðureign Stjörnunnar og Njarðvíkur verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og leikur Hauka og Þór verður í beinni á Stöð 2 Sport 2.
Segja má að heimavallarréttindin séu komin aftur í gildi þar sem Stjarnan og Haukar nældu í útisigra í síðustu umferð eftir að hafa glutrað réttinum frá sér í fyrsta leik. Nú er forvitnilegt að sjá hve vænt þeim þykir um þennan rétt eða hvort gestaliðin afreki að sækja annan sigur á sterka heimavelli.
Allir leikir dagsins
| 24-03-2016 12:00 | Drengjaflokkur | Sindri dr. fl. | Skallagrímur dr. fl. | Borgarnes | |
| 24-03-2016 19:15 | Úrvalsdeild karla | Stjarnan | Njarðvík | Ásgarður | |
| 24-03-2016 19:15 | Úrvalsdeild karla | Haukar | Þór Þ. | Schenkerhöllin |



