Heil umferð fer fram í kvöld í Iceland Express deild karla og þá er einn leikur í 1. deild karla þegar Þór Akureyri tekur á móti Val kl. 19:15 í Höllinni á Akureyri. Fjóri leikir í úrvalsdeild hefjast kl. 19:15 en tveir eru á öðrum leiktíma.
Leikir dagsins:
18:30 Grindavík-Njarðvík
19:15 Stjarnan-KR
19:15 Snæfell-Fjölnir
19:15 ÍR-Keflavík
19:15 Tindastóll-KFÍ
19:45 Haukar-Hamar
Eins og fram hefur komið á síðustu dögum hefur verið nokkuð um sviptingar í leikmannahópum liðanna í Iceland Express deildinni. Grindvíkingar fengu nýjan leikstjórnanda, Stjarnan bætti við sig framherja, Fjölnir fékk nýjan Bandaríkjamann, Keflavík fékk nýjan erlendan leikmann sem og KFÍ svo það er nokkuð um hræringar og fróðlegt að sjá hvernig nýju leikmennirnir passa inn í liðin sín svona korteri eftir jólasteikina.
Þau lið sem eru að sýna leikina sína í beinni á netinu eru Stjarnan, Tindastóll, og Haukar, Stjarnan sýnir á 210.is og Tindastóll á sinni félagssíðu sem og Haukar. KR, Fjölnir og KFÍ leika á útivelli í kvöld svo langlíklegast er að viðureignir Stjörnunnar og KR, Tindastóls og KFÍ og leikur Hauka og Hamars verði í boði í kvöld. Kíkið á heimasíður þessara félaga.
Staðan í deildinni eftir 11 umferðir:




