spot_img
HomeFréttirLeikir dagsins: Heil umferð í Iceland Express deild kvenna

Leikir dagsins: Heil umferð í Iceland Express deild kvenna

 
Í kvöld fer fram heil umferð í Iceland Express deild kvenna og er athyglisvert að skoða einn leik í þaula en það er slagur Snæfells og Hauka í Stykkishólmi. Haukar unnu fyrri deildarviðureign liðanna 70-59 svo ekkert annað en 12 stiga sigur Snæfells dugir í kvöld og þá þurfa Hólmarar einnig að treysta á það að ná sigri í síðasta leik og Haukar að tapa að sama skapi. Hólmurum sniðinn þröngur stakkur í þessum efnum enda hafa Haukar bætt við sig erlendum leikmanni.
Á heimasíðu Hauka kemur ekki fram hvort nýji leikmaðurinn verði með í Stykkishólmi í kvöld eður ei en vinni Snæfell leikinn með minna en 12 stigum eða tapi þá er ljóst að Haukar taki síðasta sætið í A-riðli.
 
Leikir kvöldsins í Iceland Express deild kvenna, hefjast allir kl. 19:15:
 
Snæfell-Haukar
Keflavík-Grindavík
Njarðvík-Hamar
Fjölnir-KR
 
Þá er einn leikur í 1. deild kvenna þegar Laugdælir taka á móti Stjörnunni kl. 19:45 á Laugarvatni. Þór Þorlákshöfn/FSu tekur á móti Keflavík í bikarkeppni 11. flokks drengja kl. 20:00 í Þorlákshöfn og kl. 20:30 mætast Valur og Haukar í Vodafonehöllinni í bikarkeppni 10. flokks stúlkna.
 
Fréttir
- Auglýsing -