HomeFréttirLeikir dagsins: Hamar í Hólminn og Reykjavíkurrimma í Dalhúsum

Leikir dagsins: Hamar í Hólminn og Reykjavíkurrimma í Dalhúsum

Í dag hefst 25. umferð í Iceland Express deild kvenna og eru tveir leikir á boðstólunum. Fyrri leikur dagsins er viðureign Snæfells og Hamars í Iceland Express deild kvenna og hefst hann kl. 15:00 í Stykkishólmi.
 
Fjölnir og KR mætast svo í Dalhúsum kl. 16:30. Fjöldi leikja er á dagskránni í dag ásamt Nettó mótinu í Reykjanesbæ en þangað er fólk hvatt til að fjölmenna og fylgjast með framtíðarleikmönnum Íslands leika listir sínar.
 
Staðan í IEX deild kvenna
Nr. Lið U/T Stig
1. Keflavík 19/5 38
2. Njarðvík 18/6 36
3. Snæfell 13/11 26
4. Haukar 12/12 24
5. KR 12/12 24
6. Valur 10/14 20
7. Hamar 6/18 12
8. Fjölnir 6/18 12
  
Mynd/ Fanney Lind Guðmundsdóttir og Hvergerðingar mæta Snæfell í Stykkishólmi í dag.
Fréttir
- Auglýsing -