Einn leikur fer fram í 1. deild karla í kvöld þegar Höttur tekur á móti Hamri á Egilsstöðum kl. 18:30. Fyrir leik kvöldsins er Hamar með 18 stig í 3. sæti 1. deildar en Höttur í 5. sæti með 16 stig. Von er á miklum slag því þegar liðin mættust í Hveragerði í fyrri umferðinni hafði Höttur þriggja stiga sigur á Hamri, 73-76.
Þá er einn leikur í bikarkeppninni hjá 10. flokki karla þegar Grindavík fær Njarðvík í heimsókn í Röstina kl. 18:30. Breiðablik fær svo Njarðvík í heimsókn í Íslandsmóti drengjaflokks kl. 19:30 í Smáranum og Hamar/FSu mætir Grindavík í bikarkeppni stúlknaflokks kl. 20:00 í Hveragerði.
Mynd/ Lárus Jónsson stýrir Hvergerðingum á Egilsstöðum í kvöld.



