HomeFréttirLeikir dagsins: Grannaslagur á Selfossi

Leikir dagsins: Grannaslagur á Selfossi

11:20
{mosimage}

(Það verður fjör hjá Brynjari og félögum í Iðu í kvöld) 

Fjórir leikir fara fram í körfunni hér heima í kvöld. Sannkölluð nágrannarimma verður þegar Þór Þorlákshöfn mætir FSu í Iðu á Selfossi í 1. deild karla. Þá getur topplið Breiðabliks unnið sinn tíunda deildarsigur í röð þegar þeir mæta Reyni Sandgerði í Smáranum í Kópavogi. Báðir leikirnir í 1. deild hefjast kl. 19:15. 

FSu á í harðri toppbaráttu við Breiðablik en þessi tvö lið verma tvö efstu sæti deildarinnar. Blikar eru taplausir með fullt hús stiga eftir 9 leiki eða samtals 18 stig en FSu hefur 16 stig í 2. sæti en þeir hafa aðeins tapað í deildinni gegn Blikum á þessari leiktíð en sá leikur fór fram þann 16. nóvember síðastliðinn í Smáranum þar sem Blikar höfðu betur 105-89. Reynismanna bíður því ærinn starfi í Kópavogi í kvöld en þeir hafa 4 stig í 9. sæti deildarinnar. 

Á Selfossi verður vafalítið hart barist en fyrri leik FSu og Þórs í deildinni lauk með 56-65 sigri FSu í Þorlákshöfn. Þór er í 4. sæti deildarinnar með 10 stig og eru inni í úrslitakeppni 1. deildar eins og sakir standa en spennan er mikil þar sem fjögur næstu lið á eftir Þór hafa 8 stig.  

Þá verður einnig leiki í bikarkeppni yngri flokki þegar KR og Valur mætast í DHL-Höllinni í unglingaflokki kl. 21:00 og Njarðvíkingar taka á móti Fjölni í bikarnum í 10. flokki karla kl. 20:00.

Fréttir
- Auglýsing -