Í dag er annar keppnisdagur undir 16 og 18 ára liða Íslands á Norðurlandamótinu í Kisakallio í Finnlandi. Á fyrsta degi töpuðu öll liðin fyrir heimaliðum Finnlands, en í dag gefst þeim kostur á að rétta sinn hlut gegn Noregi.
Lifandi tölfræði verður hægt að fylgjast með á basket.fi, en einnig verður hægt að horfa á leikina í gegnum YouTube síðu mótsins. Þá mun karfan.is einnig flytja fréttir af úrslitum liðsins.
Leikir dagsins:
Völlur: SUSI 2 – U16 Stúlkna gegn Noregi kl. 10:45
Völlur: SUSI 3 – U18 Stúlkna gegn Noregi kl. 12:45
Völlur: SUSI 2 – U16 Drengja gegn Noregi kl. 15:15
Völlur: SUSI 2 – U18 Drengja gegn Noregi kl. 17:30