Fjórir leikir eru á dagskrá í Dominosdeild karla í kvöld. Haukar fá Grindvíkinga í heimsókn á Ásvelli og á Egilsstöðum tekur botnlið Hattar á móti liði Stjörnunar. Í Stykkishólmi taka Snæfell á móti ÍR-ingum og í Njarðvíkinni kemur Einar Árni Jóhannsson, nýbakaður faðir með lið sitt Þórsara í fyrsta skipti í Ljónagryfjuna. Leikur Hattar og Stjörnunar hefst kl 18:30 en aðrir leikir hefjast á slaginu 19:15.
Mynd/DEldur: Emil Karel Einarsson mætir með liði sínu í Ljónagryfjuna.