Stórleikur fer fram í Iceland Express deild kvenna í kvöld þegar KR tekur á móti Val í DHL-Höllinni kl. 19:15 í Iceland Express deild kvenna. Með sigri getur Valur jafnað KR og Hauka að stigum og gert baráttuna um sæti í úrslitakeppnina enn harðari.
Valskonur eru í fantaformi um þessar mundir og hafa unnið síðustu þrjá deildarleiki sína en KR hefur tapað fimm deildarleikjum í röð. Valur vonast til þess að geta telft fram Melissu Leichlitner í kvöld en hún meiddist í síðasta leik gegn Haukum. Þá verður KR án Helgu Einarsdóttur og þar á bæ er einnig beðið endurkomu Bryndísar Guðmundsdóttur.
Fyrri deildarleikir liðanna:
KR 79-59 Valur
Valur 53-68 KR
Valur 86-57 KR
KR hefur því unnið tvo leiki og til þess að Valskonur nái innbyrðisviðureigninni gegn KR þá þurfa þær að vinna leikinn í kvöld með sjö stiga mun eða meira. Sjö stiga sigur Vals í kvöld eða meira kemur Hlíðarendakonum uppfyrir KR í töflunni en þær fara ekki uppfyrir Hauka því Haukar hafa betur innbyrðis gegn Val. Þar unnu liðin bæði tvo sigra í fjórum viðureignum en Haukar hafa 8 stig á Val.
Þá eru einnig sex leikir í drengjaflokki í kvöld en heildaryfirlit yfir leiki kvöldsins má nálgast hér
Mynd/ [email protected] – María Ben Erlingsdóttir og Valskonur mæta erkifjendum sínum í KR í kvöld.



