Í kvöld hefst átjánda umferðin í Iceland Express deild karla og eru þrír leikir á dagskránni kl. 19:15. Haukar freista þess að fara í Skagafjörð til að berjast fyrir tilverurétti sínum í úrvalsdeild og verður slagurinn að sjálfsögðu í beinni á Tindastóll TV.
Leikir kvöldsins í IEX-deild karla:
Tindastóll-Haukar
Keflavík-Snæfell
Stjarnan-Njarðvík
Tindastóll-Haukar
Haukar töpuðu svakalegum leik gegn Grindavík í síðustu umferð á meðan Tindastólsmenn höfðu það nokkuð þægilegt gegn Valsmönnum sem eru fallnir í 1. deild. Tíu stig eru í pottinum fyrir hvert lið það sem eftir lifir deildarkeppninnar en Haukar eru í 11. sæti með 8 stig en Tindastóll í 7. sæti með 16 stig.
Keflavík-Snæfell
Keflavík er í 5. sæti með 22 stig en fjögur lið hafa 22 stig í deildinni og berjast hart um að ná 2. sætinu. Fátt annað en kraftaverk kemur í veg fyrir að Grindavík verði deildarmeistari en þvagan með KR, Stjörnuna, Þór Þorlákshöfn og Keflavík er mjög spennandi og Snæfell getur vel blandað sér í þennan hóp en þá er sigur lykilatriði í kvöld.
Stjarnan-Njarðvík
Garðbæingar eru eitt af þessum liðum með 22 stig en Njarðvíkingar eru í 8. sæti með 16 stig og berjast hart fyrir sæti í úrslitakeppninni. Njarðvík fann sigur gegn ÍR í síðustu umferð þrátt fyrir fjarveru Cameron Echols en Stjarnan vann góðan útisigur gegn Snæfell í Stykkishólmi.
Staðan í deildinni
| 1. | Grindavík | 16/1 | 32 |
| 2. | KR | 11/6 | 22 |
| 3. | Stjarnan | 11/6 | 22 |
| 4. | Þór Þorlákshöfn | 11/6 | 22 |
| 5. | Keflavík | 11/6 | 22 |
| 6. | Snæfell | 9/8 | 18 |
| 7. | Tindastóll | 8/9 | 16 |
| 8. | Njarðvík | 8/9 | 16 |
| 9. | Fjölnir | 7/10 | 14 |
| 10. | ÍR | 6/11 | 12 |
| 11. | Haukar | 4/13 | 8 |
| 12. | Valur | 0/17 | 0 |
Mynd/ Bikarmeistarar Keflavíkur taka á móti Snæfell í Toyota-höllinni í kvöld.



