Fjórði keppnisdagur á Norðurlandamóti unglinga í Svíþjóð er hafinn og á Ísland þrjá leiki í dag. Kl. 11:00 að íslenskum tíma leika bæði U16 og U18 ára karlalandslið Íslands. 16 ára liðið mætir Dönum í leik sem sker úr um hvort Ísland fari í úrslitaleikinn eða bronsleikinn.
Leikir dagsins (Ísl. tími):
11:00 U16 kk: Ísland-Danmörk
11:00 U18 kk: Ísland-Finnland
17:00 U16 kvk: Ísland-Finnland
16 ára liðið má tapa með 5 stigum gegn Dönum og það mun þá duga þeim í úrslit. Tap með 6 stigum eða meira sendir Dani í úrslit gegn heimamönnum í Svíþjóð sem hafa þegar tryggt sér sæti í úrslitum með 7 stiga sigri á Dönum.
Ljósmynd/ U16 ára landslið Íslands er búið að vinna alla sína leiki á mótinu til þessa og nú eftir nokkrar mínútur hefst viðureign þeirra gegn Dönum.



