spot_img
HomeFréttirLeikir dagsins

Leikir dagsins

11:30
{mosimage}

 

(Pálína og Helena lyftu þeim stóra í Sláturhúsinu í fyrra) 

 

Keflavík tekur á móti Haukum í Iceland Express deild kvenna í körfuknattleik í kvöld kl. 19:15 í Sláturhúsinu. Aðeins þrjár umferðir eru eftir í deildarkeppninni áður en kemur að úrslitakeppni en Keflavík þarf sigur í kvöld og gegn KR í næstu umferð til þess að gulltryggja sér deildarmeistaratitilinn. Keflvíkingar eru í lykilstöðu í deildinni og verði þær deildarmeistarar hafa þær heimaleikjaréttinn sín megin alla úrslitakeppnina.

 

Ljóst er að Keflavík, KR, Grindavík og Haukar leika til úrslita og ræðst það brátt hvaða lið mætast í fyrstu umferð. Ef úrslitakeppnin hæfist í dag myndu Keflavík og Haukar mætast í fyrstu umferð og svo KR og Grindavík. Þá mætast botnliðin Fjölnir og Hamar í Grafarvogi kl. 19:15.  

Einn leikur fer fram í 1. deild karla í kvöld en þar verður hart barist um sæti í úrslitakeppni 1. deildar þegar Haukar taka á móti Ármanni kl. 19:15 að Ásvöllum.

Fréttir
- Auglýsing -