06:00
{mosimage}
(Kristinn Jónasson og Fannar Helgason verða í eldlínunni í dag)
Margir leikir eru á dagskrá hér á Fróni í dag. Þrír leikir verða í Iceland Express-deild karla og er leikið í Borgarnesi, Sauðárkróki og í Grafarvogi.
Í Borgarnesi fá heimamenn Stjörnumenn í heimsókn og hefst leikurinn kl. 19:15.
Á Sauðárkróki mæta Hvergerðingar til leiks og verða Hamarsmenn með nýjan erlendan leikmann innan sinna raða en leikurinn hefst kl. 19:15.
Í Grafarvogi fá Fjölnismenn Íslandsmeistara KR í heimsókn og hefst þessi leikur eins og hinir kl. 19:15.
Í 1. deild kvenna er einn leikur á dagskrá en það er viðureign KR-B og Þórs frá Akureyri. Leikið í DHL-höllinni og hefst leikurinn kl. 16:00.
Fjöldi leikja verða svo í 2. deild karla, drengjaflokki og í stúlknaflokki ásamt því að minniboltakrakkarnir verða að leika á Actavismóti Hauka að Ásvöllum.
Mynd: Snorri Örn Arnaldsson



