spot_img
HomeFréttirLeikið um sjöunda sæti við Þjóðverja

Leikið um sjöunda sæti við Þjóðverja

Íslenska U20 landsliðið lýkur keppni í A-deild evrópumótsins í dag. Liðið mætir Þýskalandi í hreinum úrslitaleik um sjöunda sæti keppninnar en Ísland er í fyrsta skipti að leika í A-deild evrópumóts og því árangurinn nú þegar sögulegur. 

 

Þjóðverjar lenntu í þriðja sæti í A-riðli mótsins en Ísland í þriðja sæti B-riðils. Þýskaland vann Tyrkland í 16 liða úrslitum en hafa svo tapað fyrir Spánni og Litháen síðan. Ísland hefur hinsvegar tapað fyrir Ísrael og Serbíu. Þessi tvo lið féllu semsagt úr leik í átta liða úrslitum gegn liðunum sem mætast í úrslitaleik evrópumótsins. 

 

Leikurinn fer fram kl 13:30 að íslenskum tíma og er að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Karfan.is. 

 

Leikur dagsins:

 

Ísland – Þýskaland kl 13:30 í beinni á Karfan.is.

Fréttir
- Auglýsing -