spot_img
HomeBikarkeppniLeik Tindastóls og Þórs Akureyri frestað

Leik Tindastóls og Þórs Akureyri frestað

Mótanefnd hefur frestað leik Tindastóls og Þórs Akureyrar í Geysisbikar karla sem leika átti í kvöld fyrir norðan á Sauðárkróki vegna ófærðar yfir Öxnadalsheiði en þar er vegurinn lokaður nú þegar og vonskuveður.

Þetta er gert að höfðu samráði við sérfræðinga Vegagerðarinnar og Veðurstofunnar sem og í samráði við bæði félögin.

Leikið verður annað kvöld þriðjudaginn 21. janúar.

Dregið verður í bikarinn í hádeginu á morgun og verða því Tindastóll/Þór Akureyri saman í einni kúlu í skálinni góðu.

Fréttir
- Auglýsing -