Fjölnismaðurinn Gunnar Ólafsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Staðfestir Gunnar þetta á samfélagsmiðlum fyrr í dag.
Gunnar er aðeins 31 árs gamall, en á þó að baki nokkuð farsælan feril með félagsliðum og landsliði. Hann er að upplagi úr Fjölni og leggur skóna sem slíkur. Ásamt því að hafa leikið með þeim var hann einnig leikmaður Keflavíkur og Stjörnunnar á Íslandi, St. Francis í bandaríska háskólaboltanum og með Oviedo á Spáni og Fryshuset í Svíþjóð.
Þá var hann á árunum 2017 til 2021 leikmaður íslenska landsliðsins og lék hann í heild 25 leiki fyrir hönd þjóðarinnar.
Karfan óskar Gunnari til hamingju með frábæran feril og velfarnaðar í því sem hann tekur sér fyrir hendur í framtíðinni.