Lovísa Björt Henningsdóttir hefur ákveðið að binda enda á glæstan leikferil sinn í körfubolta. Í færslu á samfélagsmiðlum greindi Lovísa frá ákvörðuninni og sagði tímabært að snúa sér að nýjum verkefnum eftir ótal tímabil, titla, dýrmætar minningar og átta aðgerðir.
Lovísa lék stærstan hluta meistaraflokksferils síns með uppeldisfélagi sínu, Haukum, þar sem hún hóf ferilinn árið 2009 og sneri aftur til árið 2019 eftir farsæla dvöl í Bandaríkjunum. Þar lék hún í bandaríska háskólaboltanum með Marist College á árunum 2015 til 2019.
Á ferlinum varð Lovísa meðal annars Íslandsmeistari, fjórfaldur bikarmeistari og tvöfaldur meistari meistaranna með Haukum, auk þess að leika fjölda leikja fyrir bæði yngri landslið og kvennalandslið Íslands.
Við óskum Lovísu innilega til hamingju með glæstan feril og velfarnaðar í þeim spennandi verkefnum sem bíða hennar utan vallar.




