Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt þar sem Miami Heat mættu til Orlando og höfðu betur í baráttunni um Flórídaskagann og þá reyndist Antonio McDyess hetja Spurs er hann ,,tippaði” boltanum ofan í gegn Lakers um leið og laukaflautið gall. Það sauð á LeBron James í nótt en kappinn lét 51 stigi rigna yfir Orlando og hefur enginn leikmaður skorað meira í deildinni þetta tímabilið.
Orlando 100-104 Miami
Óheppilegt fyrir Orlando að vera eitthvað að tjá sig um LeBron James en framkvæmdastjóri Orlando efaðist t.d. opinberlega um hugarfar James og framlag hans á vellinum. James svaraði því bara með 51 stigi og heldur áfram að troða fúkyrðunum ofan í fólk allar götur síðan ,,The Descision” þátturinn fór í loftið. Ekki nóg með að James hafi farið yfir 50 stigin í nótt þá var hann líka með 11 fráköst og 8 stoðsendingar. Jameer Nelson var svo stigahæstur hjá Orlando með 22 stig og Dwight ,,sem var blokkaður rosalega í tvígang” Howard gerði 17 stig og tók 16 fráköst.
Laker 88-89 San Antonio
Tony Parker var stigahæstur í liði gestanna með 21 stig en Pau Gasol var með 19 stig og 7 fráköst í liði Lakers. Það vantaði ekki á spennuna í Staples Center en í lokasókninni leiddu Lakers 88-87. Tim Duncan fór í erfitt skot uppi á lyklinum sem geigaði en aðvífandi kom Antonio McDyess og ,,tippaði” boltanum ofaní og Spurs fóru heim með sigurinn, 88-89. Dómarar leiksins notuðustu við endursýningar hjá útsendingaraðila leiksins til þess að sjá hvort karfan væri gild, sem hún var.
Golden State 100-94 Milwaukee
Tyrkinn Ersan Ilyasova var stigahæstur hjá Bucks með 23 stig og 13 fráköst en hjá Golden State var Monta Ellis með 24 stig, 5 fráköst og 6 stoðsendingar.
Mynd/ Antonio McDyess skorar hér sigurstig Spurs gegn Lakers í nótt.





