spot_img
HomeFréttirLebron James hefur skipt um umboðsmann

Lebron James hefur skipt um umboðsmann

Lebron James hefur ákveðið að segja upp samningi sínum við umboðsskrifstofuna CAA (Creative Artists Agency) sem hefur haldið utanum hans mál síðan hann tók þá afdrifaríku ákvörðun að semja við Miami Heat.  CAA er sagt vera ástæðan fyrir því að Miami þríekið varð til þar sem þeir voru allir skjólstæðingar þeirra á þeim tíma.  Nú hefur Lebron hins vegar fengið æskuvin sinn og fyrrverandi starfsmann CAA, Rich Paul, til þess að sjá um sín mál.  RIch Paul er einnig umboðsmaður fjögura annara NBA leikmanna og er því enginn nýgræðingur í bransanum.
 Þessi breyting hefur komið nokkrum sögusögnum af stað og hafa menn velt því fyrir sér hvort Lebron sé þá á leiðinni frá Miami.  Hann er hins vegar samningsbundin þeim næstu tvö árin áður en hann hefur svokallaðan "player option" og því ljóst að ef þessar breytingar hjá Lebron þýða eitthvað eiga þær breytingar sér ekki stað fyrr en eftir í það minnsta tvö ár.  
 
Fréttir
- Auglýsing -