Laugi framlengir

Guðlaugur Heiðar Davíðsson, jafnan kallaður Laugi, hefur framlengt samning sinn við körfuknattleiksdeild Fjölnis og mun leika áfram með meistaraflokki félagsins í Grafarvogi á komandi leiktíð.

Guðlaugur Heiðar átti gott tímabil í fyrra þar sem hann lét mikið að sér kveða, sérstaklega í varnarleiknum, og var meðal annars valinn besti varnarmaður liðsins við lok tímabils. Fjölnismenn fagna því að halda þessum öfluga leikmanni í sínum röðum fyrir komandi átök í vetur.

Fréttir
- Auglýsing -