spot_img
HomeFréttir"Látum þetta tap ekki slá okkur útaf laginu"

“Látum þetta tap ekki slá okkur útaf laginu”

Keflavík vann flottan og sannfærandi sigur á Tindastól í þriðka leik liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Lokatölur urðu 100-78 og staðan því 2-1 fyrir Tindastól og næsti leikur fer fram á Króknum.

Hérna er meira um leikinn

Sigtryggur Arnar Björnsson bar sig vel eftir leik og sagði sína menn ekki uggandi yfir þessum úrslitum.

“Þeir spiluðu mjög vel og við réðum hreinlega lítið við þá; hittnin hjá þeim var oft og tíðum alveg svakalega góð og þá voru þeir mun grimmari en í síðasta leik. Við fundum ekki dampinn – hittum ekki nógu vel og það vantaði betra flæði þegar á heildina er litið. Ég tek ekkert af Keflavík, þeir voru mun betri en við í kvöld. En við höldum ótrauðir áfram og látum þetta tap ekki slá okkur útaf laginu – við höfum fulla trú á sjálfum okkur og ætlum að sýna mun betri leik næst – ég lofa því.”

Fréttir
- Auglýsing -