spot_img
HomeFréttirLárus heldur heim á leið

Lárus heldur heim á leið

 
Bakvörðurinn Lárus Jónsson hefur sagt skilið við Ljónagryfjuna í Njarðvík og mun leika með Hamri það sem eftir lifir leiktíðarinnar í Iceland Express deild karla. Lárus kom til Njarðvíkinga í sumar en hann sagði í samtali við Karfan.is að tímabilið hafi verið viðburðaríkt til þessa. Lárus er öllum hnútum kunnugur í Hveragerði og eins og svo margir körfuknattleiksmenn borinn og barnfæddur á Suðurlandinu.
,,Ég býst við því að vera löglegur á fimmtudag en mér rann bara blóðið til skyldunnar og þá var líka orðið ansi fjölmennt í minni stöðu í Njarðvík,” sagði Lárus sem nú parar sig saman við Ellert Arnarson sem skilað hefur leikstjórnandastöðunni hjá Hamri í vetur ásamt Andre Dabney sem látinn var fara frá félaginu fyrir skemmstu.
 
Njarðvíkingar bættu Nenad Tomasevic við sig á dögunum sem og Jonathan Moore en Lárus sagði að þó mikið hefði gengið á þetta tímabilið hefði það ekki verið meira en oft áður.
 
,,Maður er búinn að vera lengi í þessu og búinn að upplifa þjálfaraskipti og sjá erlenda leikmenn koma og fara,” sagði Lárus sem heldur úr einni botnbaráttu yfir í þá næstu. ,,Fyrst maður skipti um klúbb kom ekkert annað til greina en Hamar. Við vorum orðnir nokkrir um mínúturnar í Njarðvík og samkeppnin mikil svo ég er kannski að gera þeim greiða,” sagði Lárus en hvernig líst honum á að para sig nú saman við Ellert í bakvarðastöðunni í Hveragerði?
 
,,Mér líst vel á að spila með Ella og hann er búinn að standa sig vel í vetur og vonandi get ég leyst hann af hólmi og við jafnvel spilað eitthvað saman,” sagði Lárus sem lék 16 deildarleiki með Njarðvíkingum og gerði í þeim 3,1 stig og gaf 2,6 stoðsendingar að meðaltali í leik.
 
,,Það eru bara sex leikir eftir í deildinni svo hlutirnir ráðast í næstu leikjum, hvort maður stefni á úrslitakeppnina eða það eitt að bjarga okkur frá falli. Við verðum að ná góðu áhlaupi hér í lokin og stefnum að sjálfsögðu á það. Nóg af stigum er í boði en öll lið eru búin að styrkja sig svo það kemur í ljós í næstu umferðum úr hverju menn eru gerðir,” sagði Lárus sem á von á miklum barning næstu umferðirnar.
 
,,Mörg lið fara nú í hvern leik eins og þeirra síðasta, eins og það verði eini leikurinn sem skipti máli í vetur, ég man persónulega ekki eftir jafn mikilli spennu svona löngu fyrir úrslitakeppni. Það er t.d. allt opið í þessu ennþá því ef eitthvert liðið við botnin hrykki nú í gang þá kæmist það jafnvel í gott sæti í úrslitakeppninni.”
 
Fréttir
- Auglýsing -