Lárus Jónsson og Breiðablik halda inn í undanúrslit 1. deildar karla í kvöld þar sem Breiðablik mætir Val sem virðist vera að sækja í sig veðrið þessi dægrin. Karfan.is ræddi við Lárusi fyrir átökin.
Andstæðingurinn í þessum undanúrslitum úrslitakeppninnar eru Valsmenn. Hvernig lýst þér á andstæðinginn sem kom á óvart í bikarkeppninni og endaði í þriðja sæti deildarinnar?
Valur er með mjög sterkt lið og líklega með breiðasta hópinn í deildinni. Þeir unnu Hött sem fór beint upp þrisvar sinnum nokkuð sannfærandi og stóðu í KR í undanúrslitum í bikar.
Blikar og Valsmenn mættust þrisvar á tímabilinu og unnu blikar einn leik á heimavelli Vals. Hvernig lýst þér á möguleikana?
Við unnum leikinn í Vodafone höllinni en töpuðum báðum leikjunum í Smáranum. Ef úrslitin ráðast á útivelli þá græðum við á því.
Blikar enda tímabilið á góðu nótunum og töpuðu ekki mörgum leikjum undir lokin. Finnst Lárusi að liðið sé að toppa á réttum tíma?
Það hefur verið ágætur stígandi í leiknum hjá okkur síðan við töpuðum fyrir Val í byrjun febrúar. Ástæðan er sú að leikmenn ákváðu að leggja meira á sig og keppa meira á æfingum. Það verður svo að koma í ljós á næstu vikum hvert það skilar okkur en við ætlum að berjast og njóta þess að spila körfubolta.
Að lokum. Nú hafa Blikar ekki verið í úrvalsdeild í nokkur ár. Af hverju ætti liðið heima í úrvalsdeild?
Breiðablik á ekki heima í úrvalsdeild frekar en önnur lið, þú verður að vinna þér inn rétt til þess að spila á meðal þeirra bestu. Okkar markmið er að Breiðablik festi sig í sessi sem eitt af bestu liðum landsins og að tryggja sig upp í Dominos er bara eitt skref í þá átt.




