HomeBónus deildinBónus deild karlaLangþráður sigur Njarðvíkinga

Langþráður sigur Njarðvíkinga

Það var sannkallaður botnslagur á dagskrá Bónusdeildar karla í kvöld þegar Njarðvíkingar tóku á móti Ármenningum í IceMar-höllinni. Þótt keppnistímabilið sé rétt farið að slíta barnsskónum eru þegar blikur á lofti hjá báðum liðum og fátt sem bendir til þess að veturinn verði þeim dans á rósum. Fyrsti snjórinn boðar jafnan komu vetrarins og með honum fylgja óhjákvæmilega hálkublettir. Slíkir blettir hafa raunar verið býsna áberandi á vegferð þessara tveggja liða það sem af er móti og því ljóst að hér var meira í húfi en aðeins tvö stig. Baráttan fyrir tilveruréttinum í deild þeirra bestu kann að vera hafin fyrr en nokkurn hefði grunað.

Þungi væntinganna hvíldi eflaust ögn þyngra á herðum heimamanna, enda heimavöllurinn jafnan talinn skjól fremur en byrði. En það skjól reyndist heldur götótt á upphafsmínútunum. Ármenningar gengu nefnilega um varnarleik Njarðvíkinga líkt og opið hús væri, án þess að nokkur virtist hafa fengið það hlutverk að gæta innganganna. Þegar sjö mínútur voru liðnar höfðu gestirnir þegar sett 30 stig á töfluna, sem verður seint talið til marks um ókleifan varnarmúr. Vörn gestanna var reyndar litlu skárri og minnti fyrsti leikhlutinn því fremur á áhyggjulausan stjörnuleik en örlagaríkan botnslag. Staðan 28:35 eftir fyrstu tíu mínúturnar og varnarsinnaðir körfuknattleiksunnendur eflaust farnir að leita sér að einhverju öðru til að horfa á.

Af framansögðu mátti ætla að sigurinn myndi að lokum falla því liði í skaut sem fyrst áttaði sig á því að varnarleikur er ekki aðeins kurteisleg tillaga heldur býsna veigamikill þáttur í þessari ágætu íþrótt.

Sóknarveislan tók örlítið hófstilltari svip í upphafi annars leikhluta, þótt hraðinn væri enn slíkur að ætla mætti að bæði lið hefðu fengið fyrirmæli um að ljúka leiknum fyrir kvöldfréttir. Hvort þessi ógnarhraði væri liðunum til framdráttar er svo önnur saga.

Einn ljósgeisli hefur þó náð að brjótast í gegnum kolniðamyrkrið í herbúðum Njarðvíkinga að undanförnu. Hinn ungi Almar Jónsson hefur komið vasklega til leiks af varamannabekknum í síðustu tveimur viðureignum og sýnt að þar kann að leynast efniviður sem vert er að hlúa að.

En aftur að átökunum á parketinu. Annar leikhluti var jafn og spennandi, þótt Ármenningar héldu lengst af tveggja til þriggja stiga forskoti. Loks tókst Njarðvíkingum að jafna metin í 49:49 þegar Aleksa Ilic setti niður þriggja stiga skot. Sú sæla reyndist þó skammvinn, því áður en heimamenn náðu almennilega að fagna höfðu gestirnir svarað með fimm stigum í röð. Staðan í hálfleik 55:60 og enn allt galopið, þótt varnarleikurinn hefði enn ekki náð þeirri reisn sem tilefnið kallaði á.

Njarðvíkingar virtust hins vegar hafa nýtt hálfleikshléið til annars og meira en að kasta mæðinni. Þeir mættu til síðari hálfleiks með aukinn þrótt í farteskinu, jöfnuðu fljótlega metin og náðu í kjölfarið forystunni. Á sama tíma fóru fyrstu merki þreytu að gera vart við sig í fótum gestanna, sem höfðu fram að þessu hlaupið af sér skóna.

Þá steig Brynjar Kári Gunnarsson fram á sviðið og tók að sér hlutverk þess manns sem ætlaði ekki að láta enn einn sigurinn renna Njarðvíkingum úr greipum. Á skömmum kafla skoraði kappinn níu stig og blés þannig nýju lífi í heimamenn, sem höfðu sjö stiga forskot, 82:75, þegar lokafjórðungurinn gekk í garð.

Og nú brá svo við að Njarðvíkingar virtust loksins hafa fundið ákveðið jafnvægi í sínum leik. Þeir héldu dampi, þéttu raðirnar og létu ekki sitt eftir liggja þegar mest á reyndi.

Skotnýting Ármenninga hafði fram að þessu verið á svipuðum slóðum og bensínverð og verðbólga hér á landi, það er að segja óþægilega há, í það minnsta fyrir heimamenn. En ólíkt þessum tveimur þrálátu fylgifiskum íslensks efnahagslífs tók skotnýting gestanna loksins að lækka, og það býsna hratt. Með hverri mínútunni sem leið varð körfunni torveldara að ná og þreytan æ sýnilegri.

Njarðvíkingar nýttu sér meðbyrinn, sigldu sigrinum í höfn og fögnuðu loks sínum fyrsta sigri á tímabilinu. Sigur sem kann að reynast þyngri á metunum en margur hyggur þegar upp verður staðið í vor. Ármenningar sátu hins vegar eftir með sárt ennið, enn án sigurs og fastir við botn Bónusdeildarinnar.

Fyrr í þessari umfjöllun var því fleygt fram að það lið sem fyrst myndi uppgötva mikilvægi varnarleiksins færi að öllum líkindum með sigur af hólmi. Sú varð raunin, að minnsta kosti að hluta. Njarðvíkingar hertu vissulega tökin þegar á leið og eiga hrós skilið fyrir það. Hitt verður þó ekki fram hjá því litið að þunnskipaður liðsstyrkur Ármenninga fór að segja verulega til sín þegar líða tók á leikinn. Varamannabekkur gestanna lagði aðeins til átján leikmínútur samtals, og það þarf engan sérfræðing í íþróttalífeðlisfræði til að átta sig á því að slíkt kann að koma í bakið á mönnum þegar leikið er á þeim hraða sem raun bar vitni.

Brynjar Kári Gunnarsson átti án nokkurs vafa sinn besta leik í búningi Njarðvíkinga til þessa. Hann skoraði 28 stig og tvöfaldaði þar með fyrra stigamet sitt í Bónusdeildinni. Það er ekki á hverjum degi sem menn tvöfalda persónuleg afrek sín á einu kvöldi og því full ástæða til að staldra við frammistöðu kappans. Þarna er sannarlega eitthvað sem Njarðvíkingar geta byggt á, enda hefur slíkt byggingarefni ekki beinlínis verið á hverju strái í upphafi þessa vetrar.

Fyrr um daginn bárust svo þær fréttir að Ingvi Þór Guðmundsson hefði yfirgefið herbúðir Ármanns. Sé tekið mið af viðureign kvöldsins er ljóst að brotthvarf hans kemur á versta mögulega tíma fyrir lið sem má vart við frekari blóðtöku. Þrátt fyrir það eiga Ármenningar hrós skilið fyrir framlag sitt. Þeir mættu ekki til Njarðvíkur sem auðveld bráð, heldur börðust af seiglu og ákveðni þar til þreytan tók að lokum sinn toll.

Njarðvíkingum tókst loksins að fóta sig á svellinu. Hvort sigur kvöldsins markar upphaf betri tíðar eða aðeins skammvinna uppstyttu í löngum og ströngum vetri verður tíminn einn að leiða í ljós. Ármenningar þurfa hins vegar að finna sér mannbrodda hið fyrsta, ætli þeir sér ekki að sitja fastir á botninum þegar vorar.

Fréttir
- Auglýsing -