20:00
{mosimage}
Pepu Hernandez, landsliðsþjálfari Spánverja í körfubolta, var í dag rekinn úr starfi. Hernandez hefur átt í deilum við forráðamenn spænska körfuknattleikssambandsins að undanförnu og þeir sáu sér ekki annað fært en að reka hann – rétt áður en heimsmeistararnir hefja leik á Ólympíuleikunum.
Spánverjar töpuðu naumlega fyrir Rússum í úrslitaleiknum á EM í fyrra, en þessi tími hefur ekki verið átakalaus fyrir Hernandez.
Hann missti sinn besta mann í meiðsli í undanúrslitaleiknum á HM fyrir tveimur árum og faðir hans lést svo daginn fyrir úrslitaleikinn.
Hernandes átti að tilkynna Ól-hóp sinn þann 10. júní nk – en nú er ljóst að einhver bið gæti orðið eftir því. Ekki hefur verið maður til að taka við liðinu.
Mynd: www.zonabasket.es