spot_img
HomeFréttirLandsliðshópurinn skorinn niður í 16

Landsliðshópurinn skorinn niður í 16

Landslið kvenna skipar nú 16 leikmenn en úr þessum hóp munu 12 leikmenn verða valdir sem taka þátt í leiknum í Portúgal á laugardaginn. Liðið verður við æfingar í dag og á morgun og mun svo halda að utan á fimmtudagsmorguninn.

Frá hópnum sem tilkynntur var í gær hafa eftirtaldir leikmenn lent undir niðurskurðarhnífnum: María Björnsdóttir, Sylvía Rún Hálfdanardóttir, Hallveig Jónsdóttir og Marín Laufey Davíðsdóttir. Einn nýlið er eftir í 16 manna hópnum en það er miðherjinn Salbjörg Ragna Sævarsdóttir.

Leikmenn í 16 manna æfingahóp landsliðs kvenna:
Auður Íris Ólafsdóttir – Haukar · Bakvörður f. 1992 · 174 cm · 8 landsleikir
Berglind Gunnarsdóttir – Snæfell · Bakvörður f. 1992 · 177 cm · 2 landsleikir
Bergþóra Tómasdóttir – Valur · Bakvörður · f. 1994 · 180 cm · 1 landsleikur
Björg Einarsdóttir – Grindavík · Bakvörður · f. 1992 · 165 cm · 3 landsleikir
Bryndís Guðmundsdóttir – Snæfell · Framherji · f. 1988 · 178 cm · 37 landsleikir
Guðbjörg Sverrisdóttir – Valur · Bakvörður · f. 1992 · 180 cm · 9 landsleikir
Gunnhildur Gunnarsdóttir – Snæfell · Bakvörður · f. 1990 · 176 cm · 21 landsleikir
Helena Sverrisdóttir – Haukar · Bakvörður · f. 1988 · 184 cm · 59 landsleikir
Ingunn Embla Kristínardóttir – Grindavík · Bakvörður · f. 1995 · 169 cm · 3 landsleikir
Jóhanna Björk Sveinsdóttir – Haukar · Framherji · f. 1989 · 178 cm · 7 landsleikir
Margrét Kara Sturludóttir – Stjarnan · Bakvörður · f. 1989 · 175 cm · 13 landsleikir
Pálína Gunnlaugsdóttir – Haukar · Bakvörður · f. 1987 · 167 cm · 33 landsleikir 
Ragna Margrét Brynjarsdóttir – Stjarnan · Miðherji · f. 1990 · 188 cm · 31 landsleikir
Salbjörg Ragna Sævarsdóttir – Hamar · Miðherji · f. 1991 · 188 cm · Nýliði
Sandra Lind Þrastardóttir – Keflavík · Miðherji · f. 1996 · 182 cm · 5 landsleikir
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir – Grindavík · Framherji f. 1988 · 181 cm · 38 landsleikir

Mynd/ Bára Dröfn – Björg Einarsdóttir leikmaður Grindavíkur er í 16 manna hópnum.

Fréttir
- Auglýsing -