HomeFréttirLandsliðið reynir fyrir sér í Körfuboltakassanum kl. 13 í Smáralind

Landsliðið reynir fyrir sér í Körfuboltakassanum kl. 13 í Smáralind

Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik verður í Skemmtigarðinum í Smáralind í dag, mánudag  frá klukkan 13:00-14:00, en þar ætlar liðið að þjappa sér saman fyrir komandi átök. Strákarnir munu reyna fyrir sér í „Körfuboltakassanum" í Skemmtigarðinum og verður stigaskor þeirra svo hengt upp fyrir aðra gesti til að bera sig saman við. Þetta kemur fram í tilkynningu frá KKÍ.
Eins og flestir vita stendur liðið í eldlínunni næstu vikurnar þar sem liðið keppir í undankeppni Evrópumótsins, EuroBasket 2013, en lokakeppnin fram fer í Sloveníu næsta haust. Íslenska liði hefur farið vel af stað í keppninni. Strákarnir stóðu í hárinu á firnasterkum Serbum og unnu svo Slóvaka á útivelli um helgina. Næsti leikur Íslands er á morgun gegn Ísraelum og því tilvalið að koma, hitta liðið á góðri stundu og spjalla við strákana um leikinn á morgun og leikina sem framundan eru.
 
www.kki.is
 
Fréttir
- Auglýsing -