spot_img
HomeFréttirLandsliðið mætir Svartfellingum í dag - Pavel varð eftir heima

Landsliðið mætir Svartfellingum í dag – Pavel varð eftir heima

Heil umferð fer fram í kvöld í A-riðlinum hjá íslenska landsliðinu í Evrópukeppninni. Íslenska liðið hefur eftir langt og strangt ferðalag komið sér fyrir í Svartfjallalandi en andstæðingarnir eru á toppi riðilsins og hafa ekki tapað leik. Viðureignin hefst kl. 20:30 að staðartíma en kl. 18:30 að íslenskum tíma.
Í síðasta leik lágu okkar menn gegn Ísrael nokkuð stórt í Laugardalshöll en Svartfellingar höfðu góðan 13 stiga útisigur gegn Eistum. Rimman verður erfið hjá okkar mönnum í kvöld sem þurfa að finna stemmninguna í vörninni sem var ábótavant gegn Ísrael.
 
Pavel Ermolinskij fór ekki með liðinu til Svartfjallalands en hann er enn hvíldur vegna meiðsla í nára.
 
  
Fréttir
- Auglýsing -