Gísli Ásgeirsson hefur sett saman heljarinnar kvæðabálk um raunir Lamars Odom en Gísli heldur úti vefsvæðinu malbeinid.wordpress.com
Kvæðabálkur Gísla er sprenghlægilegur þó höfundur segi hug sinn almennt fullan af ást og hlýju til samferðafólks síns.
Hér eru tvö dæmi úr kvæðabálknum:
Efnanotkun afar stíf
Ódom viti rændi
keypti bæði kók og víf
koníak og vændi.
Khloe situr kát við stokk
á kærleiksríkum degi.
Lamar eftir allt sitt fokk
er á batavegi.
Lamar og Klói – allur kvæðabálkurinn