HomeFréttirLakers og Orlando halda sínu striki

Lakers og Orlando halda sínu striki

10:33:25
Lakers og Orlando eru enn á flugi í NBA deildinni og unnu bæði leiki sína í nótt. Lakers kvittaði fyrir tapið gegn Miami í síðasta mánuði með naumum heimasigri og Orlandi lagði Tim Duncan og félaga í San Antonio spurs.

Ógæfu nágranna Lakers, LA Clippers, verður hins vegar allt að vopni þessa dagana og í nótt töpuðu þeir 11 leiknum í röð, nú gegn Phoenix.

Úrslit næturinnar eru hér að neðan…

Boston 94
Toronto 88

Philadelphia 109
Atlanta 94

Phoenix 109
LA Clippers 103

Orlando 105
San Antonio 98

Dallas 95
Sacramento 102

Indiana 117
Golden State 120

Miami 105
LA Lakers 108

Tölfræði leikjanna

ÞJ

Fréttir
- Auglýsing -